Auglýst útboð
Jökuldalsvegur (923), Arnórsstaðir - Langagerði
Vegagerðin býður hér með út endurbyggingu Jökuldalsvegar (923) á um 4,6 km kafla frá Arnórsstöðum að Langagerði. Um er að ræða endurbyggingu núverandi vegar á öllum vegkaflanum. Gerðar eru lagfæringar á plan og hæðarlegu vegarins á köflum.Helstu magntölur eru:
- Bergskeringar 7.450 m3
- Fyllingar 31.700 m3
- Fláafleygar 48.200 m3
- Ræsalögn 460 m
- Styrktarlag 24.200 m3
- Burðarlag 5.400 m3
- Klæðing 31.630 m2
- Vegrið 1.770 m
- Netgirðingar 2.350 m
Verkinu skal að fullu lokið 1. júlí 2025.
Tilboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 12. september 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 26. september 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign